Thursday, November 22, 2012
Tuesday, November 20, 2012
Frístundavagn Fylkis mun frá og með 17. september 2012 til 30. apríl 2013 keyra
samkvæmt meðfylgjandi skipulagi í tengslum við æfingar í Norðlingaholti, í
Árbæjarskóla og á Fylkissvæðinu við Fylkisveg. Vagninn verður í fríi í kringum jólin (15.
desember til 6. janúar) og í kringum páskana ( 23. mars til 1. apríl ).
Sú breyting hefur verið gerð frá fyrra skipulagi að vagninn er á ferðinni
milli kl. 14:00 og 17:00. Einnig geta iðkendur nýtt sér vagninn til og frá
æfingum en ekki bara á æfingastað eins og fyrirkomulagið var.
Félagið áskilur sér rétt til að gera
breytingar á þessari áætlun vegna mögulegrar breytinga á fjármögnum,
æfingatímum og þátttöku.
Ferðirnar eru aðallega fyrir krakka í 1. til 4. Bekk í grunnskólum
hverfisins: Ártúnsskóla, Árbæjarskóla, Selásskóla og Norðlingaskóla. Eldri krakkar geta nýtt sér ferðirnar sé
pláss.
Skráning í frístundavagninn fer fram á heimasíðu Fylkis
www.fylkir.com. Allir sem ætla að nýta
sér vagninn verða að skrá sig ( líka eldri ).
Dagskrá vagnsins verður gefin út á heimasíðu Fylkis og er mikilvægt að
fylgjast vel með þeim breytingum sem upp kunnu að koma. Það þarf ekki að greiða
sérstaklega fyrir að fara með vagninum eins og staðan er núna.
Starfsmaður frístundaheimilis mun fylgja þeim sem skráðir eru í
frístundaheimili að vagninum.
Þar sem enginn auka starfmaður verður í vagninum er það á ábyrgð foreldra
að börnin fari út á réttum stað og skili sér á æfingu.
Þeir krakkar sem eru með töskur og föt geta geymt það á æfingastaðnum meðan
æfingin er.
Eftir að æfingu er lokið eru krakkarnir á ábyrgð foreldra.
Mikilvægt er að foreldrar séu vel vakandi fyrir því hvernig dagskrá hópsins
er sem barnið er að æfa með. Æfingar
geta fallið niður og stundum er æfingatíma breytt.
Vagninn bíður ekki eftir neinum heldur leggur af stað á umræddum tíma.
Vakni einhverjar spurningar skal þá hafa samband við íþróttafulltrúa Fylkis
Hörð Guðjónsson hordur@fylkir.com
/ 571-5604. Einnig eru allar
ábendingar vel þegnar.
Wednesday, November 14, 2012
Netfang foreldra
Halló halló:)
Það væri frábært ef allir foreldrar gætu sent mér póst á kolbrunospe@kvenno.is úr netfangi sem þeir nota með nafni barns og kennitölu.
Þar sem öll skilaboð komast ekki alltaf til skila þá mun ég sendi póst með mikilvægum upplýsingum eða ef eitthvað er að gerast.
Kveðja,
Kolbrún Ósk
Friday, November 9, 2012
Foreldrafundur
Vil minna alla foreldra á foreldrafundinn í kvöld kl 17.00 (eða beint eftir æfinguna) í tengibyggingunni í Fylkishöll.
Einnig er náttfatapartý á æfingunni og eiga allir að mæta í náttfötum:)
Kveðja,
Kolbrún Ósk
s. 8452051
Einnig er náttfatapartý á æfingunni og eiga allir að mæta í náttfötum:)
Kveðja,
Kolbrún Ósk
s. 8452051
Tuesday, November 6, 2012
Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að fjölmenna á Villibráðarkvöld Fylkis og kynnast aðeins betur.
Hið árlega Villibráðarkvöld Fylkis verður haldið laugardaginn 17. nóvember. Handknattleiksdeildin hefur staðið fyrir þessum viðburði síðustu ár og er þetta nú eitt glæsilegasta villibráðarhlaðborð landsins. Í fyrra urðu því miður margir frá að hverfa þar sem miðar seldust upp. Að þessu sinni flytjum við því hátíðina upp í Fáksheimili sem rýmra verður um mannskapinn og hægt að taka á móti fleiri gestum.
Veislustjórnin verður að þessu sinni í höndum Bjarna töframanns og einhver skemmtiatriði verða að auki. Áður en matarveislan hefst verður vínkynning; það verður happdrætti með fjölda glæsilegra vinninga og að borðhaldi loknu mun hljómsveitin Með allt að láni leika fyrir dansi líkt og undanfarin ár. Miðaverð er kr. 6.900 og hefst miðasala í afgreiðslu Fylkishallar í byrjun nóvember.
Allir Fylkismenn og aðrir unnendur góðrar villibráðar eru hvattir til að mæta - en þarna fá menn með í kaupunum skemmtun og dansleik til viðbótar við frábært villibráðarhlaðborð, um leið og menn styðja við bakið á mikilvægu íþróttastarfi hjá Fylki.
Líkt og undanfarin ár er matseðillinn einstaklega glæsilegur:
Forréttir:
Hreindýrapaté með sultuðum rauðlauk og heimalöguðu rifsberjahlaupi
Grafið lamb með bláberja-vinaigrette
Grafið og reykt nautafile með piparrótarrjóma
Gæsapaté
Villibráðar-tartar með capers og piparrót
Grafnar gæsabringur
Heitreyktar gæsabringur með jarðarberjasósu
Lax í sítrus
Reykt silungamús með hvítlaukssósu
Laxatartar með capers og lime
Heitreykt önd mað jarðarberjasósu og sesam-rucola
Aðalréttir:
Hreindýrabollur í gráðostasósu
Villikryddaðar gæsabringur
Lamba læri í kryddjurtum
Meðlæti:
Ferskt grænmeti
Waldorf salat
Gratin kartöflur
Rifsberjasulta og rauðlaukssulta
Rauðvínslegnar perur
Villibráðarsósa
Nýbakað brauð
Eftirréttur:
Súkkulaðikaka með berjum og rjóma
Subscribe to:
Posts (Atom)